Laugardaginn 17. júlí næstkomandi verður Kjósin opnuð fyrir gestum og gangandi undir kjörorðinu “Kátt í Kjós” og er þetta í fjórða sinn sem efnt er til slíkrar hátíðar í sveitarfélaginu. Á undanförnum árum hafa mörg þúsund manns heimsótt Kjósina heim á þennan „Kjósardag“, sem vakið hefur verðskuldaða athygli og tekist með miklum ágætum.
Með hátíðinni „Kátt í Kjós“ vilja Kjósverjar gefa öllum þeim sem áhuga hafa tækifæri á að koma í heimsókn í sveitarfélagið til þess að skoða sveitina og það sem falleg náttúran og íbúar sveitarfélagsins hafa uppá að bjóða.
Tilvalið er því fyrir fjölskylduna að skella sér í sveitina og slá upp tjaldbúðum hér í Hvammsvík og njóta einstakrar nátturufegurðar og gestrisni kjósvera þessa helgina. Af þessu tilefni munum við einnig bjóða frítt í golf og veita 20% afslátt af veiðileyfum í Hvammsvík þann 17.júlí.
Við vonumst eftir að sjá sem flesta koma og gera sér glaðan dag í kjósinni.